Opinn fundur um málefni Jökulsárlóns 30.nóv kl 19:30 í Golfskálanum á Höfn

FASK boðar til opins fundar um málefni Jökulsárlóns þar sem farið verður yfir drög að rekstraráætlun, rekstrarform, áform um stofnun fasteignafélagsins, og fleiri þætti.

Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 30.nóv nk. kl 19:30 í Golfskálanum á Höfn.

Að kynningu lokinni verður orðið gefið laust og fundarmenn hvattir til að spyrja spurninga og/eða leggja fram tillögur fyrir fundinn.

Fundurinn er opinn öllum íbúum á félagssvæði FASK.

Hvetjum við alla áhugasama að mæta og hlökkum við til að sjá sem flesta.

Stjórn FASK