Aðalfundur Ferðamálafélags Austur Skaftafellssýslu (FASK)

Aðalfundur FASK haldinn 12. október 2026 á Hótel Smyrlabjörgum sendir frá sér eftirfarandi ályktun um gjaldtöku innan Vatnajökulsþjóðgarðs, ráðstöfun þeirra fjármuna sem og upplýsingagjöf, samráð og fyrirsjáanleika gagnvart rekstraraðilum.

Fundurinn krefst þess að gjaldtaka verði tekin til heildstæðrar endurskoðunar með það að markmiði að tryggja jafnræði, gagnsæi, samræmi og sanngirni gagnvart rekstraraðilum. Krafist er að sambærileg starfsemi sæti sambærilegri gjaldtöku, óháð rekstrarsvæði, að gjaldtaka byggist á skýrum og málefnalegum forsendum og að gjaldskrár, forsendur þeirra og útreikningar séu aðgengilegir. Jafnframt er kallað eftir heildstæðri úttekt á mismunandi gjaldtöku milli rekstrarsvæða þjóðgarðsins og raunverulegu samráði við rekstraraðila við endurskoðun og mótun framtíðarfyrirkomulags.

Fundurinn óskar eftir skriflegum og sundurliðuðum upplýsingum um sértekjur á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs síðustu þrjú rekstrarár, eftir því sem gögn liggja fyrir. Sérstaklega er óskað eftir svörum við eftirfarandi spurningum

1. Sértekjur þjóðgarðsins

  • Hverjar hafa heildarsértekjur Vatnajökulsþjóðgarðs á suðursvæði verið á hverju ári síðustu þrjú rekstrarár?
  • Hvernig skiptast þessar tekjur eftir tekjustofnum, sérstaklega bílastæðagjöldum og gjöldum sem lögð eru á rekstraraðila vegna íshellaferða, þar á meðal farþegagjöldum?

2. Ráðstöfun teknanna

  • Hvernig hefur þessum tekjum verið ráðstafað á hverju ári, sundurliðað eftir rekstri, viðhaldi, uppbyggingu innviða og öðrum verkefnum?
  • Hversu stór hluti teknanna, bæði í krónum og hlutfallslega, hefur verið nýttur á þeim stöðum þar sem teknanna er aflað?
  • Hversu stór hluti teknanna hefur verið nýttur til verkefna annars staðar á suðursvæði eða á öðrum rekstrarsvæðum Vatnajökulsþjóðgarðs?

3. Skipting tekna milli svæða

  • Hversu miklar tekjur hafa verið innheimtar sérstaklega við Jökulsárlón og hversu stórum hluta þeirra hefur verið varið til uppbyggingar, viðhalds og þjónustu á Jökulsárlóni?
  • Hversu miklar tekjur hafa verið innheimtar vegna íshellaferða og hvernig hefur þeim verið ráðstafað?
  • Hvaða reglur eða viðmið gilda um ráðstöfun sértekna milli einstakra staða og rekstrarsvæða þjóðgarðsins?

4. Gögn og gagnsæi

  • Óskað er eftir að lagt verði fram sundurliðað rekstraruppgjör sem sýnir tekjur og ráðstöfun þeirra eftir einstökum tekjustofnum og svæðum fyrir hvert ár?
  • Ef slíkt uppgjör liggur ekki fyrir, með hvaða hætti er þá haldið utan um ráðstöfun teknanna og hvernig er tryggt að hægt sé að rekja nýtingu þeirra?

Fundurinn skorar á Náttúruverndarstofnun og hlutaðeigandi ráðherra að bregðast við kröfunum og tryggja gagnsætt, sanngjarnt og fyrirsjáanlegt fyrirkomulag gjaldtöku í samræmi við meginreglur um jafnræði og málefnalega stjórnsýslu. Jafnframt er óskað eftir afhendingu umbeðinna gagna í samræmi við upplýsingalög nr. 140/2012.

Virðingarfyllst fyrir hönd fundarins, stjórn Ferðamálafélags Austur-Skaftafellssýslu

Laufey Guðmundsdóttir

Tinna Rut Sigurðardóttir

Ágúst Elvarsson

Birna Þrúður Sigurbjörnsdóttir

Sigrún Kapitola Guðrúnardóttir