Aðalfundur Ferðamálafélags Austur-Skaftafellssýslu ( FASK )
Aðalfundur FASK verður haldinn fimmtudaginn 27. Apríl 2023 kl. 17.00, fundurinn er
haldinn á Smyrlabjörgum.
Fundurinn er opinn öllum íbúum á félagssvæði FASK. Atkvæðisrétt á aðalfundi eiga allir
skuldlausir skráðir félagar eða fulltrúar þeirra. Fyrir fundinn verður almennt kaffispjall á
Smyrlabjörgum. Kaffispjallið mun standa yfir frá 16:00 – 17:00.
Allir sem áhuga hafa á að sækja aðalfund FASK eru beðnir um að senda tölvupóst á
netfangið faskstjorn@gmail.com og fá þannig send fundargögn
Dagskrá fundarins:

  1. Skýrsla stjórnar ásamt félagaskrá
  2. Ákvörðun um árgjald
  3. Ársreikningur
  4. Lögð fram starfsáætlun næsta árs.
  5. Kosning stjórnar og tveggja endurskoðenda
  6. Önnur mál.

Hafi aðilar spurningar fyrir fundinn eru þeir vinsamlega beðnir um að senda fyrirspurnir inn til
stjórnar, hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið faskstjorn@gmail.com.
F.h stjórnar FASK
Haukur Ingi Einarsson

Tags: